Fyrirlestur fyrir skóla

Andleg og líkamleg heilsa (70-75 mín)

Í þessum fyrirlestri fer Einar Örn sjúkraþjálfari yfir mikilvægi hreyfingar og réttrar líkamsbeitingar þegar kemur að líkamlegri heilsu barna og unglinga. Einnig fer hann yfir áhrif orkudrykkjaneyslu á svefn og hversu skaðleg mikil neysla á þessum drykkjum getur verið.

            Margrét Lára sálfræðingur og íþróttafræðingur fer yfir nokkra þætti sem að nemendur geta nýtt sér til að auka andlegt heilbrigði sitt. Hvernig nemendur geta byggt upp sjálfsmynd sína og verið þar með betur undirbúin til að takast á við streitu, mótlæti eða erfiðleika í leik og starfi. Einnig fer Margrét Lára yfir mikilvægi svefns og aðferðir til að auka svefngæði.